Það er langt síðan ég hef skrifað eitthvað hér og margt gerst síðan síðast.
Við fórum til Íslands um seinustu jól og vorum hjá mömmu, það var yndislegt, gott að borða og gott að vera.
Síðan hefur það nú gerst að við erum að fjölga í fjölskyldunni og á það að gerast í september.
Ég er atvinnulaus því það er engin hér sem vill ráða ólétta konu í vinnu, og hitt fyrirtækið fór á hausinn.
Annars er allt við það sama hér, hann er á sjónum og ég sit heima, vinn reyndar aðrahvora helgi á kránni og það er ágætt.
Kemst þá allavegna aðeins út úr húsi og hitti annað fólk.
Nenni ekki að skrifa meira hérna núna
Seinna.
Sunday, June 14, 2009
Thursday, December 11, 2008
Einu sinni.
Átti ég 3 kisur, núna á ég bara 2. Uppgötvaði að það var búið að keyra yfir læðuna mína og hún dáin. Er mikil sorg hjá mér núna.
Er líka búin að vera lasin síðan á þriðjudag með flensu og hafði það því ekki gott. Vonast nu til að vera orðin frísk áður en við förum á klakann. Annars er ekki mikið að frétta héðan, við vorum á jólahlaðborði á seinasta laugardag og var það mjög fínt. Nenni ekki að skrifa meira núna þarf að fara og grafa mis. Seinna
Er líka búin að vera lasin síðan á þriðjudag með flensu og hafði það því ekki gott. Vonast nu til að vera orðin frísk áður en við förum á klakann. Annars er ekki mikið að frétta héðan, við vorum á jólahlaðborði á seinasta laugardag og var það mjög fínt. Nenni ekki að skrifa meira núna þarf að fara og grafa mis. Seinna
Saturday, November 15, 2008
Bara að láta vita af mér
Vildi nú bara svona aðeins láta vita af mér. Við erum búin að vera að byggja vegg þannig að það eru kominn 3 svefnherbergi í húsið, er sem sagt komin með herb. fyrir mömmu þegar hún kemur til að vinna í fiski í Hanstholm. hahahahaha bara djók. erum líka búin að kaupa bíl, fékk hann í afmælisgjöf haha, síðan vorum við að skipta um salerni, til að spara vatn því vatn er svo dýrt hérna. Bara æðislegt..... Annars er ég búin að vera sjúkraskrifuð síðan ég kom frá Íslandi og er að verða biluð í höfðinu á að hanga heima ( meira en vanalega). Annars vildi ég líka láta vita af því að við ( Sigurd og ég) komum til Íslands um jólin, þann 21 lendum við og við förum svo aftur heim þann 3 jan. Það verður gaman að hitta þá sem vilja hitta okkur. Nenni ekki að skrifa meira núna. Seinna
Monday, July 28, 2008
Heitt
Það er svo heitt hérna að ég er við það að bráðna. Get varla sofið fyrir hita. Er annars bara að vinna og reyna að sofa. Hann kemur heim núna í vikunni og er þá búinn að vera út á sjó í tvær vikur, verð nú að viðurkenna að ég hef saknað hans soldið núna finnst hann hafa verið lengi í burtu. En það verður bara að vera svona hann er jú sjómaður. Talaði við Maju vinkonu í gær og mikið var það gott held samt að við höfum talað í tvo tíma, hún er að flytja heim með mann og barn. En hún ætlar nú samt að koma aðeins við hér áður en þau fara. Mikið hlakkar mig til að sjá þau, hef ekki séð þau síðan þau fluttu út, frekar slappt, jæja verð nú að druslast í rúmið þarf að fara að vinna í fyrramálið. Seinna
Saturday, July 26, 2008
Er á lífi
Vildi nú bara láta vita að ég er ekki dauð og grafinn, enn þá. Hafði það nú af að losna við snákana sem sonur minn skildi eftir hjá okkur mikið var ég fegin, annar var nefnilega búinn að finna út að hann komst út úr búrinu og ég var að verða frekar þreytt á að tína hann upp eða leita að honum um allt hús. Annars gengur allt fínt hér, er enn þá í sambúð og bý enn þá í þessu húsi eini munurinn er að ég er kominn með 2 kisur. Bara svo mér leiðist ekki hann er alltaf út á sjó þannig að ég er ein heima. Það er svo gott veður núna að ég sit hér í svitabaði og get enganveginn verið. Var nú samt að slá garðinn áðann og komst þá að því að slátturvélin er að hrynja. Fann bút af henni á grasinu. Verð nú að fara að setja myndir einhverstaðar svo þið getið séð hvernig ég bý núna. Jæja verð að halda áfram í garðinum má ekki vera að þessu . Seinna
Saturday, April 19, 2008
Snákar
Sonur minn er sem sagt fluttur heim aftur héðan úr danaveldi, nennti ekki meir. Ég aftur á móti saman með stjúpa hans sit uppi með 2 snáka, "Strømpebånds" snoge, útlegst á íslensku sokkabands snákar. Skemmtilegt. Annars er lítið héðan að frétta, yndislegt veður og engin snjór. Er búin að uppgötva nýja skemmtun hérna og það eru göngutúrar á ströndinni. Algerlega frábært. Þetta er svona eins og meðferð nema bara betra og ferskara loft. Kærastin er farin á sjóinn og verður þar þangað til allavegana næsta laugardag, þannig að ég sit hér ein heima með snákana hans Þrastar. Er að verða búin að koma öllu á sinn stað þannig að þetta lítur út eins og mannabústaður. Jæja nenni ekki að skrifa meira í kvöld, vildi bara láta vita að ég væri á lífi. Seinna.
Thursday, March 6, 2008
Hús
Við Þröstur erum búin að kaupa hús hér í Hanstholm. 126 fermetra einbýlishús með 23 fermetra bílskúr og 800 fermetra lóð. Fáum húsið afhent þann 14 mars. Mikið hlakkar okkur til að flytja, að geta haft alla okkar hluti á einum stað og þurfa ekki að velta því fyrir sér hvað eigandin segir ef við rekum nagla einhverstaðar í. Við flytjum þrjú inn í þetta nýja hús sem kostaði okkur 615 þús dkk. Þetta er reynslutími á sambúð milli okkar þriggja, athuga hvort að við getum búið saman. Jæja má ekki vera að því að skrifa meira núna. Seinna
Subscribe to:
Posts (Atom)